Nokia N90 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur
það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki kveikja á símanum þar sem notkun
þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem
hún kann að valda truflunum eða hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR Fara skal

að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa
hendur frjálsar til að stýra ökutækinu
við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir
í akstri.

TRUFLUN Allir þráðlausir símar geta verið

næmir fyrir truflunum, sem getur haft áhrif
á virkni þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á
SJÚKRASTOFNUNUM
Virða skal allar

takmarkanir. Slökkva skal á símanum
nálægt lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í
FLUGVÉLUM
Virða skal allar takmarkanir.

Þráðlaus tæki geta valdið truflunum
í flugvélum.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN
ELDSNEYTI ER TEKIÐ
Ekki nota símann nærri

eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við
eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM
VERIÐ ER AÐ SPRENGJA
Virða skal allar

takmarkanir. Ekki nota símann þar sem verið
er að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI Notist aðeins

í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í
leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal
óþarfa snertingu við loftnetið.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA Aðeins viðurkennt

starfsfólk má setja upp eða gera við þessa
vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR Aðeins má

nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki
má tengja saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI Símtækið er ekki vatnshelt.

Halda skal því þurru.

background image

10

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

ÖRYGGISAFRIT Muna skal að taka öryggisafrit

eða halda skrá yfir allar mikilvægar
upplýsingar sem geymdar eru í símanum.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI Þegar tækið er

tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók
með því vandlega, einkum upplýsingar um
öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL Gakktu úr skugga um að
kveikt sé á símanum og hann sé virkur.
Takkaborðið er aðeins virkt þegar tækið er
opið. Styðja skal á hætta-takkann eins oft og
þarf til að hreinsa skjáinn og hverfa aftur að
upphafsskjánum. Sláðu inn neyðarnúmerið og
ýttu á hringitakkann. Gefa skal upp
staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en af
fengnu leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt
til notkunar á EGSM 900/1800/1900 og UMTS 2100
símkerfinu. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar
um símkerfi.

Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin
réttindi annarra við alla notkun þessa tækis.

Þegar myndir eða myndinnskot eru tekin eða notuð skal
fylgja öllum lögum og virða staðbundna siði auk einkalífs
og lögbundinna réttinda annarra.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki,

annarra en vekjarans, þarf að vera kveikt á tækinu.
Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra
tækja getur valdið truflun eða hættu.

Sérþjónusta

Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir
þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margar aðgerðir í þessu
tæki eru háðar því að aðgerðir í þráðlausa símkerfinu virki.
Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum
símkerfum eða þörf getur verið á sérstökum ráðstöfunum
hjá þjónustuveitunni áður en hægt er að nota sérþjónustu.
Þjónustuveitan getur þurft að gefa viðbótarfyrirmæli um
notkun og útskýra hvaða gjöld eiga við. Sum símkerfi geta
verið með takmörkunum sem hafa áhrif á hvernig hægt er
að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla
séríslenska bókstafi og þjónustu. Sérþjónusta er auðkennd
í þessari handbók með

.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar
aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í
tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækinu kann einnig að hafa verið sérstaklega samskipað.
Þessi samskipan kann að fela í sér breytingar á

background image

11

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

valmyndarheitum, röð valmynda og táknum.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL)
sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Fyrir sumar aðgerðir
í tækinu, eins og MMS, netskoðun, tölvupóst og niðurhal
efnis um vafra eða með MMS, þarf símkerfisstuðning við
viðkomandi tækni.

Upplýsingar um framboð og notkun SIM-korta má fá hjá
seljanda SIM-kortsins. Þetta getur verið þjónustuveitan,
símafyrirtækið eða annar söluaðili.

Aukahlutir, rafhlöður
og hleðslutæki

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður
en rafhlaðan er fjarlægð.

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru
notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
þegar það er hlaðið orku frá DC-4, AC-3 og AC-4
hleðslutækjum, og frá AC-1, ACP-7, ACP-8, ACP-9,
ACP-12, LCH-8, LCH-9 eða LCH-12 hleðslutækjum þegar
þau eru notuð með millistykkinu CA-44 sem fylgir með
símanum.

Rafhlaðan sem nota skal með þessu tæki er BL-5B.

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki

og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til notkunar
með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar
gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri
notkun getur fylgt hætta.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti
sem samþykktir eru til notkunar með tækinu. Þegar
aukahlutur er tekinn úr sambandi skal taka í klóna,
ekki leiðsluna.

background image

Nokia N9

0 t

æ

kið þitt

12

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.