Spurningar & Svör
Bluetooth-tengingar
Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns?
Svar: Kannaðu hvort Bluetooth-tengingin hafi verið virkjuð
í báðum tækjunum.
Gakktu úr skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna
tveggja sé ekki meiri en 10 metrar og að ekki séu veggir
eða aðrar hindranir á milli þeirra.
Gakktu úr skugga um að hitt tækið sé stillt á sýnilegt.
Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf.
Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-tengingu?
Svar: Ef annað tæki er tengt við símann þinn getur þú slitið
tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth-
tengingunni í símanum þínum. Ýttu á
og veldu
Tenging
>
Bluetooth
>
Slökkt
.
Margmiðlunarskilaboð
Spurning: Hvað á ég að gera þegar síminn getur ekki tekið við
margmiðlunarskilaboðum vegna þess að minnið er fullt?
Svar: Í villuboðunum koma fram upplýsingar um hvað þarf að
losa um mikið minni:
Ekki hægt að sækja skilaboð. Eyða
verður einhverjum gögnum fyrst.
Til að sjá hvers konar
gögn eru geymd í tækinu og hversu mikið minni
mismunandi gögn nota skaltu ýta á
og velja
Verkfæri
>
Skráarstjórn
>
Valkostir
>
Minnisupplýsingar
.
Spurning: Tilkynningin
Sæki skilaboð
birtist í stutta stund.
Hvað er að?
Svar: Síminn er að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð frá
skilaboðastöðinni.
Gakktu úr skugga um að stillingar margmiðlunarskilaboða
hafi verið rétt valdar og að símanúmer og vefföng séu rétt.
Ýttu á
og veldu
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlun-arskilaboð
.
Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu þegar síminn
kemur henni sífellt á aftur?
Svar: Til að koma í veg fyrir að síminn komi á gagnatengingu
skaltu velja:
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
Móttaka margmiðl.
—Til að sækja margmiðlunarskilaboð
handvirkt skaltu velja
Handvirkt val
. Þegar einhver sendir
þér margmiðlunarskilaboð getur þú valið hvort þú vilt
sækja skilaboðin eða ekki. Veldu
Óvirk
til að hafna öllum
margmiðlunarskilaboðum sem þér hafa verið send.
Skilaboð
>
Valkostir
>
Stillingar
>
Stillingar
tölvupósts
>
Pósthólf
>
Sjálfvirk tenging
>
Síðuhausar
sóttir
>
Óvirk
—Til að slökkva á sjálfvirkri móttöku hausa.
Þú getur áfram sótt þá handvirkt.
Úrræðaleit
123
Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.
Skilaboð
Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið?
Svar: Sennilega inniheldur tengiliðaspjaldið hvorki
símanúmer né tölvupóstfang. Bættu upplýsingunum sem
vantar á tengiliðaspjaldið í
Tengiliðir
.
Færslur sem eru aðeins vistaðar á SIM-kortinu sjást ekki í
tengiliðaskránni. Upplýsingar um afritun tengiliða af SIM-
korti yfir í
Tengiliðir
er að finna í ‘Tengiliðir afritaðir’,
bls. 40.
Myndavél
Spurning: Af hverju virðast myndir vera óskýrar?
Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler
myndavélarlinsunnar sé hreint.
Spurning: Af hverju er myndavélarforritið ekki í
aðalvalmyndinni?
Svar: Myndavélin ræsir sig þegar þú velur Mynda-
eða Myndavélarstöðu. Sjá ‘Staða tækisins’, á bls. 12.
Dagbók
Spurning: Af hverju vantar númer fyrir vikurnar?
Svar: Ef þú hefur breytt dagbókarstillingunum þannig að vikan
hefst á öðrum degi en mánudegi birtast ekki númer fyrir
vikurnar.
Vafraþjónusta
Spurning: Hvað geri ég ef þessi skilaboð birtast:
Enginn gildur
aðgangsstaður skilgreindur. Skilgreina í Vefstillingum.
?
Svar: Settu inn réttar vafrastillingar. Hafðu samband við
þjónustuveituna þína til að fá leiðbeiningar.
Notkunarskrá
Spurning: Af hverju er notkunarskráin tóm?
Svar: Ef til vill hefurðu valið einhverja síu og engin samskipti
hafa verið skráð sem hæfa þeirri síu. Til að sjá alla viðburði
skaltu ýta á
og velja
Forrit. mín
>
Notkunarskrá
.
Skrunaðu til hægri og veldu
Valkostir
>
Sía
>
Öll
samskipti
.
Spurning: Hvernig eyði ég upplýsingum úr notkunarskránni?
Svar: Til að hreinsa notkunarskrána skaltu ýta á
og velja
Forrit. mín
>
Notkunarskrá
. Skrunaðu til hægri og veldu
Valkostir
>
Hreinsa notkun.skrá
eða
Stillingar
>
Skráning varir
>
Engin skráning
. Þetta eyðir öllu efni
notkunarskrárinnar, nýlegum símtölum og
skilatilkynningum skilaboða varanlega.
Tenging við tölvu
Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með að tengja símann
við tölvuna mína?
Svar: Gakktu úr skugga um að Nokia PC Suite sé uppsett og í
gangi á tölvunni þinni. Nánari upplýsingar er að finna í
notendahandbókinni fyrir Nokia PC Suite á geisladiskinum.
Ef Nokia PC Suite hefur verið sett upp og ræst geturðu
notað Nokia Get connected wizard forritið til að tengjast
við tölvuna þína. Til að sjá upplýsingar um notkun PC Suite
skaltu skoða hjálparvalmyndina í Nokia PC Suite eða
þjónustusíðurnar á www.nokia.com.
Úrræðaleit
124
Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.
Aðgangslyklar
Spurning: Hvað er lykilorðið mitt fyrir læsingar-, PIN-, eða
PUK-númerin?
Svar: Sjálfgefið númer læsingar er 12345. Ef þú gleymir eða
týnir læsingarnúmeri skaltu hafa samband við söluaðila
símans.
Ef þú gleymir eða týnir PIN- eða PUK-númeri, eða ef þú
hefur ekki fengið slíkt númer, skaltu hafa samband við
þjónustuveituna.
Upplýsingar um lykilorð má fá hjá aðgangsstaðaþjónustu,
líkt og internetþjónustuveitu, þjónustuveitu eða
símafyrirtæki.
Forrit svarar ekki
Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið, þ.e. svarar
ekki?
Svar: Opnaðu skiptiglugga forrita með því að halda inni
takkanum. Veldu svo forritið og ýttu á
til að loka því.
Skjár
Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir eða skærir
punktar á skjánum þegar ég kveiki á símanum?
Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á sumum
skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa annaðhvort
stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða galla í
símanum heldur eðlilegan hlut.
Lítið minni
Spurning: Hvað get ég gert ef minnið í símanum er lítið?
Svar: Þú getur eytt eftirfarandi hlutum reglulega til að komast
hjá því að minnið fyllist:
•
Skilaboðum úr
Innhólf
,
Uppköst
og
Sendir hlutir
möppunum í
Skilaboð
•
Sóttum tölvupósti úr minni símans
•
Vistuðum vefsíðum
•
Myndum í
Gallerí
Til að eyða tengiliðaupplýsingum, atriðum í dagbók, teljurum,
kostnaðarteljurum, stigum leikja, eða einhverjum öðrum
gögnum skaltu opna viðkomandi forrit til að fjarlægja gögnin.
Ef þú eyðir nokkrum hlutum og önnur af eftirfarandi
athugasemdum birtist:
Ekki nægilegt minni fyrir aðgerð.
Eyða þarf einhv. gögnum fyrst.
eða
Lítið minni eftir. Eyða
þarf einhverjum gögnum.
skaltu reyna að eyða einum hlut
í einu (með því að eyða fyrst þeim minnsta).
Spurning: Hvernig get ég vistað gögnin mín?
Svar: Vistaðu gögnin með einni af eftirfarandi leiðum:
•
Notaðu Nokia PC Suite til að búa til öryggisafrit af öllum
gögnum og setja það á samhæfa tölvu.
•
Sendu myndir á tölvupóstfangið þitt og vistaðu þær svo
í tölvunni þinni.
•
Sendu gögn með Bluetooth-tengingu í samhæft tæki.
•
Vistaðu gögn á samhæfu minniskorti.