Birtuskilyrði
Breytingar á ljósgjafa, birtumagni og áttinni sem ljósið
kemur úr geta gerbreytt ljósmyndum. Hér eru nokkur dæmi
um algeng birtuskilyrði:
• Ljósgjafinn er fyrir aftan myndefnið. Forðast skal að
stilla myndefni upp fyrir framan sterkt ljós. Ef
ljósgjafinn er fyrir aftan myndefnið eða sést á skjánum
mun myndin koma til með að hafa mjög veik birtuskil,
verða of dökk auk annarra óæskilegra áhrifa. Einnig má
nota flassið til að lýsa upp dökka bletti. Sjá ‘Flass’,
á bls. 46.
• Birtan til hliðar við myndefnið. Sterkt hliðarljós getur
bætt við dramatískum áhrifum en því má ekki ofgera og
þannig valda of miklum birtuskilum.
• Ljósgjafinn fyrir framan myndefnið. Sterkt sólarljós
hefur þau áhrif að fólk pírir augun. Ljósið getur einnig
valdið of miklum birtuskilum.
• Besta lýsingin er þegar nóg er af dreifðri, mjúkri birtu,
líkt og á björtum og hálfskýjuðum degi eða á sólríkum
degi í skugga trjáa.