
Pósthólfið opnað
Þegar þú opnar pósthólf getur þú valið á milli þess að
tengjast við tölvupóstmiðlarann eða skoða tölvupóst
og fyrirsagnir tölvupósts sem þú hefur áður sótt án
þess að tengjast.
Þegar þú velur pósthólfið þitt og styður á
spyr síminn hvort þú viljir
Tengjast pósthólfi?
Veldu
Já
til að tengjast pósthólfinu og ná í fyrirsagnir
tölvupósts eða texta þeirra. Þegar þú skoðar tölvupóst
meðan á tengingu stendur ertu stöðugt í sambandi við
ytra pósthólfið með gagnapakkatengingu. Sjá einnig
‘Tengistillingar’, á bls. 110.
Veldu
Nei
til skoða tölvupóst sem þú hefur sótt áður án
þess að tengjast við miðlarann. Þegar þú skoðar tölvupóst
án tengingar er síminn ekki tengdur við ytra pósthólfið.