Nokia N90 - Bluetooth-tenging

background image

Bluetooth-tenging

Þú getur tengst öðrum samhæfum tækjum þráðlaust
með Bluetooth. Samhæf tæki eru m.a. farsímar, tölvur og
aukabúnaður eins og höfuðtól og bílbúnaður. Þú getur
notað Bluetooth til að senda myndir, myndinnskot, tónlist,
hljóðinnskot og minnismiða; til að tengjast öðrum
samhæfum tölvum þráðlaust (t.d. til að flytja gögn) eða
til að tengjast við samhæfan prentara til að prenta myndir
með

Myndprentun

. Sjá ‘Prentun mynda’, á bls. 59.

Þar sem tæki með Bluetooth nota útvarpsbylgjur til
samskipta þarf tækið ekki að vera í beinni sjónlínu við hitt
tækið. Nóg er að tækin séu í innan við 10 metra fjarlægð
hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á tengingunni
vegna hindrana líkt og veggja eða annarra raftækja.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 1.2
sem styður eftirfarandi snið: Basic Printing Profile,
Generic Access Profile, Serial Port Profile, Dial-up
Networking Profile, Headset Profile, Handsfree Profile,
Generic Object Exchange Profile, Object Push Profile, File
Transfer Profile, Basic Imaging Profile og Human Interface
Device Profile. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja

sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukahluti sem
eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal
upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi
þeirra við þetta tæki.

Útskýring: Snið tengist þjónustu eða virkni og

skilgreinir hvernig mismunandi tæki tengjast. Til dæmis
er handfrjálsa sniðið notað til að tengja handfrjálst
tæki og símann. Til að tæki séu samhæf þurfa þau að
styðja sömu snið.

Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni á
sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum á staðnum
eða þjónustuveitunni.

Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum
aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir
eru notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka
endingu rafhlöðunnar.

Ekki er hægt að nota Bluetooth þegar tækið er læst. Frekari
upplýsingar um læsingu tækisins er að finna í ‘Öryggi’, á
bls. 113.

background image

Tengingar

101

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.