Pörun tækja
Útskýring:Pörun þýðir sannvottun. Notendur tækja
með Bluetooth þurfa að koma sér saman um lykilorð
og nota sama lykilorð fyrir bæði tækin til að geta
parað þau. Tæki sem ekki eru með notandaviðmót eru
með fast lykilorð frá framleiðanda.
Í aðalskjá
Bluetooth
skaltu ýta á
til að opna skjá
paraðra tækja (
).
Fyrir pörun skaltu búa til þitt eigið lykilorð (1-16
tölustafir) og biðja eiganda hins tækisins um að nota
sama lykilorð. Lykilorðið er aðeins notað einu sinni.
Til að parast við tæki skaltu velja
Valkostir
>
Nýtt parað
tæki
. Tæki með Bluetooth sem eru innan sendisvæðis byrja
að birtast eitt af öðru á skjánum. Veldu tækið og sláðu inn
lykilorðið. Slá verður sama lykilorð inn í hitt tækið. Eftir
pörunina vistast tækið á skjá paraðra tækja.
Pöruð tæki eru auðkennd með
í
tækjaleitinni.
Ábending! Til að velja stuttnefni (gælunafn) fyrir
parað tæki skaltu skruna að því og velja
Valkostir
>
Gefa stuttnefni
í skjá paraðra tækja. Þetta nafn hjálpar
þér að þekkja ákveðið tæki á meðan tækjaleit stendur
yfir eða þegar tæki biður um tengingu.
Til að tilgreina tæki sem heimilt eða óheimilt skaltu
skruna að því og velja úr eftirfarandi valkostum:
Stilla sem heimilað
—Hægt er að koma á tengingu milli
tækisins þíns og þessa tækis án þinnar vitneskju. Ekki þarf
að samþykkja eða heimila tenginguna sérstaklega. Notaðu
þessa stillingu fyrir þín eigin tæki, s.s. samhæft höfuðtól
eða tölvu, eða tæki þeirra sem þú treystir.
táknar
samþykkt tæki í skjá paraðra tækja.
Stilla sem óheimilað
—Alltaf þarf að samþykkja beiðni
um tengingu frá tækinu.
Til að hætta við pörun skaltu velja tækið og síðan
Valkostir
>
Eyða
. Ef þú vilt hætta við allar paranir skaltu
velja
Valkostir
>
Eyða öllum
.
Tengingar
103
Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.
Ábending!Ef notandi er tengdur við tæki og eyðir
pöruninni við það er hún fjarlægð strax og slökkt er
á tengingunni.