Niðurhal og kaup á hlutum
Þú getur hlaðið niður hlutum eins og hringitónum,
myndum, skjátáknum símafyrirtækis, þemum og
myndinnskotum. Sumir þessara hluta eru ókeypis á
meðan aðrir eru til sölu. Hlutir sem hlaðið er niður eru
meðhöndlaðir af viðeigandi forritum símans. Þannig er
ljósmynd sem hlaðið hefur verið niður vistuð í
Gallerí
.
Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit
og annan hugbúnað frá aðilum sem veita nægilegt
öryggi og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.
1
Til að hlaða niður hlut skaltu skruna að tenglinum
og styðja á
.
2
Veldu viðeigandi valkost til að kaupa hlutinn
(t.d. „Kaupa“).
3
Lestu vandlega allar upplýsingar.
Veldu
Samþykk.
til að halda niðurhali áfram.
Veldu
Hætta við
til að hætta við niðurhal.
Höfundarréttarvarnir geta komið í veg fyrir að hægt sé að
afrita, breyta, flytja eða framsenda sumar myndir, tónlist
(þar á meðal hringitóna) og annað efni.