Nokia N90 - Almennar

background image

Almennar

Tungumál síma

—Ef tungumáli skjátexta er breytt

í símanum hefur það einnig áhrif á það hvernig
dagsetningin og tíminn birtast, sem og þau skiltákn sem
eru notuð (t.d. við útreikning).

Sjálfvirkt

velur tungumálið

út frá upplýsingunum á SIM-kortinu þínu. Síminn
endurræsist þegar nýtt tungumál er valið fyrir
skjátextann.

Þegar stillingunum

Tungumál síma

eða

Tungumál texta

er breytt hefur það áhrif á öll forrit símans og breytingin
er virk þangað til stillingunum er breytt aftur.

Tungumál texta

—Þegar tungumálinu er breytt hefur það

áhrif á það hvaða stafi og sértákn er hægt að velja þegar
texti er ritaður og kveikt er á flýtirituninni.

Orðabók

—Til að stilla flýtiritunina á

Virk

eða

Óvirk

í

öllum ritlum símans. Það er ekki hægt að velja flýtiritun
fyrir öll tungumál.

Opnun.kv. eða táknm.

—Opnunarkveðjan eða táknið birtist

í stutta stund í hvert sinn sem kveikt er á símanum. Veldu

Sjálfvalin

til að nota sjálfgefnu myndina,

Texti

til að skrifa

opnunarkveðju eða

Mynd

til að velja mynd úr

Gallerí

.

Upprun. símastillingar

—Þú getur fært sumar stillingarnar

aftur í upprunalegt horf. Til þess þarftu læsingarkóðann.
Sjá ‘Öryggi’, ‘Sími og SIM’, bls. 114. Þegar stillingar hafa
verið færðar í upprunalegt horf getur það tekið lengri
tíma að ræsa símann. Breytingin hefur engin áhrif á
skjöl og skrár.