Símkerfi
Síminn getur skipt sjálfkrafa á milli GSM og UMTS-
símkerfanna. GSM-símkerfið er táknað með
í biðstöðu.
UMTS-símkerfið er táknað með
.
Símkerfi
(sést aðeins ef símafyrirtækið styður það)—
Veldu hvaða símkerfi á að nota. Ef þú velur
Tvöfaldur
hamur
skiptir síminn sjálfkrafa á milli GSM- og UMTS-
símkerfanna í samræmi við kerfisstillingar og
reikisamninga á milli símafyrirtækjanna. Nánari
upplýsingar fást hjá símafyrirtækinu.
Val á símafyrirtæki
—Veldu
Sjálfvirkt
til að stilla símann
þannig að hann leiti að og velji eitt af þeim símkerfum sem
eru í boði, eða
Handvirkt
til að velja símkerfið sjálf/ur af
lista yfir símkerfi. Ef tengingin rofnar við símkerfið sem var
valið handvirkt gefur síminn frá sér hljóðmerki og biður um
að símkerfi sé valið aftur. Símkerfið sem er valið verður að
vera með reikisamning við símkerfið þitt, þ.e. fyrirtækið
sem lét þig fá SIM-kortið sem er í símanum.
Útskýring: Reikisamningur er samningur milli tveggja
eða fleiri farsímaþjónustuveitna um að leyfa notendum
einnar veitunnar að nota þjónustu hinna.
Uppl. um endurvarpa
—Veldu
Virkar
til að láta símann
gefa til kynna þegar hann er notaður á farsímakerfi sem
byggir á örbylgjutækni (MCN) og til að virkja móttöku
upplýsinga frá endurvarpa.