Nokia N90 - Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

128

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

Viðbótaröryggisupplýsingar

Í tækinu og aukahlutum þess geta verið litlir hlutir. Þá skal
geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Vinnuumhverfi

Hafa ber í huga að farið sé að öllum sérstökum reglugerðum
sem gilda á hverju svæði og að slökkva alltaf á tækinu þar sem
notkun þess er bönnuð, eða þar sem hún kann að valda truflun
eða hættu. Tækið notist aðeins í hefðbundinni stöðu. Þetta
tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við
notkun annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar
það er haft að minnsta kosti 1,5 sm (5/8 tommur) frá
líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar
tækið er borið á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður
ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta
kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér
á undan.

Svo að hægt sé að senda gagnaskrár eða boð þarf þetta tæki
góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending
gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal
að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til
sendingu er lokið.

Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni geta dregist að
tækinu og fólk með heyrnartæki ætti ekki að halda tækinu
upp að eyranu með heyrnartækinu. Ekki má geyma kreditkort
eða aðra segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt
tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar
með talin notkun þráðlausra síma, kann að trufla virkni
lækningatækja sem ekki eru nægilega vel varin. Hafa skal
samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til
þess að komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir
utanaðkomandi útvarpsbylgjum eða til að afla nánari
upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda við
heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um
að það sé gert. Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna
að nota búnað sem getur verið næmur fyrir utanaðkomandi
útvarpsbylgjum.

Gangráðar

Framleiðendur gangráða mæla með því að

15,3 sm (6 tommu) lágmarksbil sé haft á milli þráðlauss síma
og gangráðs til þess að komist sé hjá hugsanlegri truflun í
gangráðinum. Þessi tilmæli eru í samræmi við sjálfstæða
rannsókn og tilmæli frá Wireless Technology Research.
Notendur gangráða ættu:

alltaf að halda tækinu í meira en 15,3 sm (6 tommu)
fjarlægð frá gangráðinum;

ekki að bera tækið í brjóstvasa; og

að hafa tækið við eyrað sem er fjær gangráðinum til að
draga úr líkum á truflunum.

Ef grunur leikur á að tækið trufli gangráðinn skal slökkva á því
og færa það í burtu.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

129

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

Heyrnartæki

Tiltekin stafræn þráðlaus tæki geta truflað sum

heyrnartæki. Ef truflun verður skal leita til þjónustuaðila.

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum
ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin,
svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð
hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð hraðakerfi og
loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda
bílsins eða búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa
hans.

Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið
upp í ökutæki. Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda
hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð sem kann að vera á tækinu.
Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus
tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt.
Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða
sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða
aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa
hugfast að loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja
hluti, þar með talinn uppsettan eða færanlegan þráðlausan
búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á útþenslusvið
loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og
loftpúðinn þenst út getur slíkt orsakað alvarleg meiðsl.

Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal
á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun
þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við
stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið
ólöglegt.

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á
sprengingum og fara að öllum tilmælum sem sjást á skiltum
og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera á
svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél
bifreiðar. Neistaflug á slíkum svæðum getur valdið sprengingu
eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel dauðsföll. Slökkva
skal á símanum á eldsneytisstöðvum, svo sem við
eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á
notkun útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar
sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum
eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta
er mikil eru oftast auðkennd en þó ekki alltaf. Þar á meðal eru
svæði undir þilfari á bátum; svæði þar sem sterk efni eru
geymd eða búin til flutnings; ökutæki sem nýta fljótandi
svartolíugas (própan eða bútan) og svæði þar sem í lofti
eru efni eða agnir, til dæmis korn, ryk eða málmduft.

Neyðarhringingar

Mikilvægt:

Þráðlausir símar, þar á meðal þetta

tæki, nota útvarpsmerki, þráðlaus kerfi, kapalkerfi og
notendaforritaðar aðgerðir. Því er ekki hægt að tryggja
tengingar við hvaða skilyrði sem er. Því skyldi aldrei
treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða
bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

130

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort
nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi.
Í tilteknum símkerfum kann að vera farið fram á að gilt
SIM-kort sé rétt sett í tækið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann til að hreinsa skjáinn og fara
aftur í biðstöðu.

3

Opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði er valið.
Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Ýttu á hringitakkann.

Ef ákveðnar aðgerðir eru í notkun þarf ef til vill að gera þær
óvirkar áður en neyðarsímtal er mögulegt. Nánari upplýsingar
má fá í þessari handbók eða hjá þjónustuveitunni.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar
upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa
tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað.
Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Viðvörun

: Í sniði án tengingar geturðu hvorki hringt

né tekið á móti símtölum. Áfram er hægt að hringja í
ákveðin neyðarnúmer en engar aðrar aðgerðir, þar sem
tenging við símkerfið er nauðsynleg, eru mögulegar.

Viðvörun

: Ekki er hægt að hringja neyðarsímtöl í

myndatökustöðunni vegna þess að takkaborðið er ekki
virkt. Þú þarft að opna flipann til að geta hringt
neyðarsímtal.

Upplýsingar um vottun (SAR)

ÞETTA TÆKI UPPFYLLIR ALÞJÓÐLEGAR LEIÐBEININGAR UM
ÁHRIF AF ÚTVARPSBYLGJUM.

Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er
hannað og framleitt með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af
útvarpsbylgjum (RF) sem alþjóðlegar leiðbeiningar (ICNIRP)
mæla með. Þessar takmarkanir eru hluti ítarlegra leiðbeininga
og eru viðmiðunarreglur um leyfileg mörk útvarpsmerkja sem
almenningur getur komist í snertingu við. Þessar leiðbeiningar
voru þróaðar af sjálfstæðum vísindastofnunum með
reglubundnu og ítarlegu mati á viðeigandi vísindarannsóknum.
Í stöðlunum eru öryggisfrávik talsverð til að tryggja öryggi
allra, burtséð frá aldri eða heilsufari.

Í staðli um útvarpsbylgjur úr þráðlausum tækjum er notuð
mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR,
samkvæmt alþjóðlegu leiðbeiningunum, eru 2,0 vött/
kílógramm (W/kg)*. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum
stöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum
mældum tíðnisviðum. Þó að magn SAR sé mælt á hæsta
sendistyrk getur SAR-styrkur tækisins í notkun verið mun lægri
en hámarksgildið. Það er vegna þess að tækið er hannað til að
vinna á mörgum styrkstigum en notar hverju sinni aðeins þann
styrk sem til þarf til að ná sambandi við símkerfið. Almennt
gildir að því nær sem notandinn er grunnstöð, þeim mun minni
styrk notar tækið.

Hæstu mörk SAR fyrir þetta tæki þegar þau voru mæld
við notkun við eyrað eru 0,29 W/kg.

background image

Viðbótaröryggisupplýsingar

131

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.

SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum
mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs. Notkun
aukabúnaðar getur valdið því að SAR gildið verði annað.
Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur
á www.nokia.com

* Efri mörk SAR fyrir almenna notkun þráðlausra tækja eru
2,0 W/kg að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvefjum. Í
leiðbeiningunum eru talsverð öryggisfrávik til að auka vernd
almennings og taka tillit til frávika í mælingum. SAR-gildi
kunna að vera breytileg milli landa sökum mismunandi
upplýsingaskyldu og tíðnisviðs. Upplýsingar um SAR í öðrum
löndum má finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com

background image

132

Copyright © 2005 Nokia. All rights reserved.